Þjónustuleiðir

INNANHÚSSHÖNNUN

Við hönnum, teiknum (2D-3D) verslum eða fáum verðtilboð og stíliserum verkefnið þitt. Allt eftir þínum þörfum og væntingum. Við getum líka haft yfirumsjón með verkferlum og séð um samskipti við verktaka í ferlinu. Þú færð umfangsmikið yfirlit yfir efnisval, litaval, útlit og verkferla.

Hentar einstaklingum jafn sem fyrirtækjum.

Gefum tilboð í hvert verk.

MINTA STÍLISERING

Útlitsplön á rými með stíliseringu og jafnvel innkaupum. Hentar vel þegar taka á í gegn eitt rými svosem stofu og gerum við þá plön um uppsetningu rýmis með tilliti til gamalla eða nýrra húsgagna, veljum jafnvel nýja liti á veggi eða loft, aðstoðum með uppröðun á veggi og í hillur.

 

Gefum tilboð í hvert verk.

MINTA RÁÐGJÖF

Innanhússráðgjöf með yfirferð á rými og 2-3 tíma heimsókn þar sem gefin eru góð ráð er varða liti, hönnun rýmisins eða framkvæmdir og öllum spurningum svarað.

Fast verð 50.000 + vsk

Best að fólk undirbúi sig, sendi myndir (og teikningar ef þær eru til) fyrir heimsókn ásamt upplýsingum um stíl og helstu spurningar og hvaða breytingar fólk er að hugleiða. Allt opið fyrir allar spurningar á meðan heimsókn stendur, en svona færð þú mest út úr heimsókninni.

LITARÁÐGJÖF

 

Litaráðgjöf á heimili. Við komum í heimsókn og ráðleggjum þér með samsetningu og val lita fyrir þitt rými með tilliti til efnis og húsgagna. Litráðgjöf getur verið allt frá málningu til húsgagna, innréttinga eða gólfefna og samspil þess. Miðað er við klukkutíma heimsókn.

 

Fast verð 25.000 + vsk

ÚTSTILLINGARÞJÓNUSTA

Við setjum upp plan fyrir þitt fyrirtæki vegna útstillinga innan verslunar eða í glugga. Útvegum standa eða annað sem þörf er á og setjum allt upp fyrir þig.

Tilvalið fyrir stærri og smærri verslanir hvort sem það er bundið við eina útstillingu (t.d. vegna opnunar nýrrar verslunar), árstíðarbundna þjónustu eða reglulegar breytingar.

 

Gefum tilboð í hvert verk.


VEISLUÞJÓNUSTA

Tökum annað slagið að okkur skreytingu á sal fyrir fermingar, brúðkaup, afmæli eða starfsmannagleði. Fyrirvari þarf að vera svo hægt sé að útvega réttar skreytingar, gera plön og taka út sal með tilliti til þinna óska. Við setjum allt upp og tökum allt niður. Getum leigt út blöðruboga.

 

Gefum tilboð í hvert verk.

Við hönnum fyrir þig !